Færsluflokkur: Lífstíll

Ágætis biðleikur en gjaldeyrissparandi/skapandi störf þarf þó til framtíðar

Eðlilegt útspil gagnvart vaxandi atvinnuleysi. En ekkert af þessu er beint gjaldeyrisskapandi né gjaldeyrissparandi. Það eru þó þau störf sem samfélagið þarf að skapa á næstu árum eigi það að geta greitt af erlendum skuldum. Við greiðum ekki erlend lán nema með auknum afgangi af viðskiptajöfnuði (gjaldeyri).
mbl.is Ætla að skapa 4000 ársverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgð Seðlabankanns

Davíð var hress í morgun og benti okkur á að Seðlabankinn bæri enga ábyrgð á kreppunni og hefði varað stjórnvöld við um langa hríð.
 
Vandamálið er að þeir eru allir ábyrgir en halda að vegna þess að þeir bera ekki alla ábyrgð þá sé í lagi að sitja áfram.  Þeir benda á hvorn annan, mikla mistök annarra en þegja yfir sínum.  Ríkisstjórnin og fjölmiðlar bera að sjálfsögðu ábyrgð.  Útrásarvíkingarnir bera mesta ábyrgð og vonandi varðar undanfarin hegðun þeirra við lög.  Fjármálaeftirlitið ber þarnæst mesta ábyrgð og furðulegt að það skuli ekki vera búið að hreinsa þar út (hver skrifaði t.d. uppá leyfi Landsbankans fyrir Icesafe reikningunum? sá hinn sami skuldar okkur 600 milljarða).  

Davíð er sannfærandi einstaklingur og það er engin furða hversu langt hann hefur náð í pólitík og hversu margir lepja upp það sem hann segir án gagnrýni.  Ég er alls ekki að segja að Davíð hafi hér ekki rétt fyrir sér.  Að sjálfsögðu er hegðun útrásarvíkinganna forkastanleg og helsta ástæða efnahagshrunssins.  Þeir verða þó ekki dregnir til ábyrgðar nema þeir hafi brotið lög og er ég sammála Davíð í því að starfsemi bankana, fjármálaeftirlitssins og Seðlabankanns verður að rannsaka af óháðum aðilum og í opinni rannsókn því það er sanngjörn krafa að þjóðin öll geti fygst með þessum rannsóknum því við munum þurfa að borga fyrir þennan ósóma.
 
Það má þó ekki gleyma að Davíð Oddson og fylgisveinar hanns í fyrrverandi ríkisstjórnum bera fulla ábyrgð á því laga umhverfi sem bankarnir störfuðu í og er vægt til orða tekið þegar sagt er að það hafi verið algerlega ófullnægjandi.  Meðan Davíð hamaðist sem ólmur væri við að koma lögum á fjölmiðla hér um árið, hefði kanski verið nær að setja einhver frekari lög um bankastafsemi á Íslandi.  Þau krosseignatengsl sem þar voru milli banka og stærstu fyrirtækja landsins og hvernig bankarnir voru notaðir í þágu eigendanna í glórulausri útrás í gegnum ýmis fyrirtæki og eignarhaldsfélög voru forkastanleg og sýnir best hversu hættuleg stefna nýfrjálshyggjunnar var um fjármagn án eftirlits og laga sem Davíð og hanns skósveinar knúðu Íslendinga til fylgilags við.

Seðlabankinn ber einnig mjög mikla ábyrgð en eðlilega reynir Davíð að draga úr henni.  Mistök Seðlanbankanns eru þó allavega eftirfarandi:
 
- Engum gjaldeyrisforða var safnað í góðærinu þó vitað væri að um óeðlilegt innflæði fjármagns vegna spákaupmanna og erlendra áhættusækinna vogunarsjóða. Davíð sagðist hafa varað stjórnvöld við árið 2006 en safnaði samt engum forða þó gengið á krónunni væri í algeru hámarki og erlendir gjaldmiðlar sérstaklega ódýrir.

- Bindiskyldan í lágmarki.  Seðlabankinn hefði auðveldlega getað beitt bindiskyldunni á bankavíkingana og hamið þá eitthvað með því.
 
- Gæði ábyrgða minnkuð.  Seðlabankinn lækkaði gæðakröfu veða frá bönkunum í byrjun síðasta sumars.
 
Alvarlegustu afglöppin eru þó eftirfarandi: 
 
- Seðlabankinn vissi að í óefni væri að stefna.  Seðlabankinn lagði ekki fram neina áætlun né hafði forgöngu um að slík áætlun væri sett saman um hvað skyldi gera ef einhver af íslensku bönkunum myndi lenda í þroti vegna yfirstandnandi lausafjárkreppu.  Þegar formaður bankaráðs Glitnis mætir í seðlabankann þá kokkar Davíð upp yfirtöku Glitnis á sunnudagseftirmiðdegi án þess að neinir sérfræðingar væru kallaðir til að meta áhrif þessarar ákvörðunar á stöðu bankanna innlendis sem erlendis.  Þessar aðgerðir ýttu af stað atburðarás sem engin réð síðan við.  Gjalddagi lánsins sem Glitnir bað um fé fyrir var um 3 vikur fram í tímann og hefði á þeim tíma verið hægt að undirbúa aðkomu ríkissins að bankakreppunni með betri hætti.
 
- Önnur mistök sem ekki endilega flokkast sem afglöpp í starfi - og þó - er stýrivaxtastefna Seðlabankanns undanfarin ár.  Hún átti að vera til þess að minnka þenslu en varð til þess að eftirspurn eftir íslenskum hávaxta krónum jókst bæði hjá erlendum fjárfestum, sem vildu komast í þessa háu vexti, og hjá almenningi, sem tók erlend lán til að komast í lægri vexti og skipti þeim í krónur, t.d. við íbúðakaup.  Stýrivaxtastefna Seðlabankanns olli því óeðlilegu innflæði fjármagns og óeðlilega háu gengi krónunar. Margir bentu á þessa hættu en Seðlabankinn kaus að hafa þessi ummæli að engu.
 
- Ýmis óheppileg ummæli Seðlabankastjóra fyrstu vikurnar í Október voru heldur ekki til að bæta ástandið.


Eitt tækifæri

Eina leiðin til að þjóðin haldi einhverju snefli af sjálfsvirðingu í þessum hamförum er ef hún getur sameinast í einum mótmælum með ein skýr skilaboð til stjórnmálamanna.  Ein skýr skilaboð um að þjóðinni stendur ekki á sama um þá spillingu og klíkustarfsemi sem einkennt hefur leið hennar í þrot.  Ein skilaboð um að nú verði stjórnmál á Íslandi að breytast. Skilaboð sem sýna að þjóðin samþyki ekki að stjórnmálamenn fari fram með vald sitt eins og þeim sýnist í þágu sérhagsmuna.  Ein skýr skilaboð sem valdhafar geta brugðist við strax.  Ein skýr skilaboð sem breytt geta þáttöku almennings í íslenskum stjórnmálum. Ein skýr skilaboð sem breytt gætu íslenskum stjórnmálum til hinns betra.  Ein skýr skilaboð um að Davið Oddson verði leystur undan embætti seðlabankastjóra strax.

Ég sting uppá laugardeginum klukkan 3.


mbl.is Vilja rannsókn á viðskiptum bankamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Offituofsóknir orðin háskólagráða?

Jæja, er það nú orðin sérstök háskólagráða að veitast að feitu fólki.  Heilsuhagfræði?  Það má ekki gleymast að á þessum 40 árum hefur heilsa íslendinga stórbatnað, hjartasjúkdómar hefur fækkað um helming og lífslíkur batnað til muna.  Ég get ekki séð að spítalarnir séu fullir af feitu fólki í andarslitrunum.

Skyndibiti?  Samkvæmt rannsóknum hjartaverndar hefur neysla á fitu stórminnkað síðustu áratugina.  Neysla á vatni hefur stóraukist svo og á grænmeti sem þekktist varla hér áður fyrr.  Menn ættu að fara varlega í að úthrópa matarræði þjóðarinnar.  Margt hefur batnað þó sumt hafi kanski versnað.  Að sjálfsögðu er áyggjuefni ef venjulegt fólk hefur ekki efni á næringarríkum og hollum mat.  því verður þó ekki breytt með því að veitast að feitum börnum og kenna því um eitthvað ímyndað heilsufarsvandamál. 

Ég minni bara á að feitt fólk sem borðar að öllu jöfnu hollan mat og hreyfir sig eitthvað má búast við að vera við hestaheilsu fram í háa elli.  Of mikil fita í matarræði hækkar að sjálfsöguð líkur á hjartasjúkdómum en þó að einhver fita sé utaná líkamanum þá er hún þar ósköp saklaus og engum hefur tekist að sanna að hún sé líkamanum óholl.


mbl.is Offitufaraldur á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Birgir Þórarinsson

Höfundur

Birgir Þórarinsson
Birgir Þórarinsson
Höfundur er tónlistarmaður og tölvunarfræðingur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • visitala02
  • visitala01
  • visitala02
  • visitala01
  • visitala02

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband